Setja sér markmið og ná þeim er góð tilfinning !

jæja þá erum við stelpurnar útskrifaðara úr stjörnuþjálfununni og haldnar af stað út í lífið með breyttan lífstíl að leiðarljósi. Við náðum allar frábærum árangri og flestum ef ekki öllum af okkar markmiðum. Í dag líður mér stórkostlega og lít til baka á farinn veg með stolti og er ekkert smá ánægð með sjálfa mig, þetta gat ég! Ég missti 6,5 kg, lækkaði um 8 % í fitu og það fóru af mér 34 cm í heildina ! Ég lít í spegilinn á nærfötunum og er ánægð með það sem ég sé, ég get hlaupið 7 km án þess að stoppa(ef ekki fleiri, hef ekki látið reyna á það) og ég get gert 20 góðar armbeygjur í röð! Markmiðum náð. :) Hrikalega góð tilfinning !

Áður en ég byrjaði í stjörnuþjálfun leið mér ömurlega, og ég held að ég hafi bara alls ekki verið langt frá því að verða þunglynd. Ég gekk í gegnum hræðilega lífsreynslu í byrjun árs þegar ég lenti í rútuslysi þegar ég var á leiðinni í sjálfboðaliðastarf í Tansaníu. Á öðrum deginum mínum úti var ég á leiðinni í rútu til þorpsins þar sem ég ætlaði að eyða næstu 3 mánuðum af lífi mínu og vinna á munaðarleysingja heimili fyrir ungar stelpur. Ég var buin að hlakka mikið til ferðarinnar og mikill undirbúningur fór í hana. Á leiðinni klessti rútan mín á aðra rútu í frammúrakstri og báðar rúturnar ultu útaf veginum. Ég var heppin og slasaðist einungis lítilega, en ég get ekki sagt að allir hafi verið svo heppnir. Líf sumra í rútunni endaði þarna þennan dag og ég er ólýsanlega þakklát fyrir að það var ekki mitt líf! Þetta var hræðilegt áfall að lenda í þessu, og það hjálpaði ekki til að ég var í framandi landi þar sem ég þekkti ekkert og engann. Ég tók þess vegna ákvörðun um að það væri lítið gang í mér þarna í svona ástandi og ákvað að fara heim.

Ég sá alls ekki eftir þeirri ákvörðun þó svo það hafi verið erfitt að taka hana. Ég var búin að ferðast alla þessa leið og það var mjög erfitt að fara bara heim því ég er ekki þekkt fyrir að gefast upp. En í þessu tilfelli var eiginlega ekki annað í boði. Þegar ég var komin heim leið mér mjög illa og átti í stríði við margar vondar tilfinningar eins og vonbrigði, hræðslu og sorg. Mér leið einnig illa í skrokknum og var stöðugt illt í bakinu og í mjöðminni og ég gat lítið hreyft mig. Rólegur göngutúr með hundinn var meira að segja meira en ég þoldi. Ég fitnaði mikið á þessum tíma og datt algjörlega úr formi, sem var þó ekki mikið fyrir. Því fygldi síðan enn meiri vanlíðan. Ég byrjaði smátt og smátt sjálf að hreyfa mig þegar meiðslin löguðust en ég náði engum árangri.

Í byrjun hausts var ég algjörlega buin að fá nóg af því að líða svona og ég varð bara að fara að gera eitthvað í þessu. Þá rakst ég á auglýsingu inn á Smartlandi sem sagði : villtu komasti í holywoodform ? eða eitthvað álíka og skráði mig til leiks! Og hér er ég :) Þetta var eins og himnasending! Ég er hamingjusamari og í betra formi en nokkru sinni fyrr og það sem meira er og besti parturinn við þetta allt saman er að ég er ung og á allt lífið framundan og ég hlakka til að eyða því heilbrigðum og fallegum stjörnuþjálfuðum kroppi ! 

Þátttaka mín í stjörnuþjálfun hefur breytt mér þvílíkt og ég er farin að hugsa og haga mér allt öðruvísi. Einu sinni var ég skyndibitasjúk og vissi ekkert betra en dominos pizzu og kók en í dag kýs ég frekar að fá mér eitthvað hollt og gott á uppáhalds veitingarstaðnum okkar stelpnanna, Krúsku. Það er í alvörunni besti matur sem ég hef á ævi minni fengið ! svona fyrir utan það sem hún móðir mín mallar í eldhúsinu ;)  Hreyfing er orðin mjög stór partur af lífi mínu og ég vil helst fara í ræktina á hverjum degi! En einn hvíldardagur í viku er víst nauðsynlegur! 

Ég er núna að byrja að setja mér ný markmið og skipuleggja mig hvernig ég ætla að ná þeim því það verður svo sannarlega ekki stoppað hér eins og ég hef sagt áður. Svona er lífið mitt núna og ég er að fíla það! Ég mæli sterklega með því að taka lífstílinn sinn í gegn og breyta svona til ef fólk er í sömu sporum og ég var í. Þessu fylgir mikil vellíðan og ánægja og það geta þetta allir ! þetta er bara spurning um að byrja einhverstaðar og setja sér markmið. Svo er það bara að leggja sig allan fram við að ná þeim. Það er ekki auðvelt og mikil vinna, en það er svo sannarlega skemmtilegt ! 

Það eru nokkrir hlutir sem ég tel að hafa skilað mér þessum mikla árangir á skömmum tíma. Í fyrsta lagi er hún Anna Eiríksdóttir bara frábær þjálfari í alla staði! Hún hvetur mann áfram, hrósar manni og það er alltaf hrikalega gaman á æfingum hjá henni. Í öðru lagi tel ég það að æfa 4-5 sinnum í viku og hafa æfingarnar svona rosalega fjölbreyttar skili mjög miklu. Við vorum aldrei að gera það sama í vikunni og það var alveg punkturinn yfir i-ið að enda vikuna á Hot fitness tímnum sem eru rólegir tíma þar sem við vinnum með djúpvöðvana og ég held að sá tími hafi haft mikið að segja með það að fá tone-aðann líkama. Í þriðja lagi hefur það hjálpað mér mjög að setjast niður svona ca einu sinni í viku og blogga um árangurinn minn. Það að segja frá því sem hefur gerst hjá mér viku fyrir viku er rosalega hvetjandi og ég tala nú ekki um ef maður á góða vini sem commenta eitthvað á það og hvetja þig áfram;). Í fjórða lagi tel ég mjög mikilvægt að setja sér einhver markmið áður en maður byrjar svo maður hafi eitthvað til að stefna að. Það er líka bara svo góð tilfinning að ná þeim! Maður vill bara meira.  Í fimmta og seinasta lagi veit ég að mataræðið skiptir númer eitt tvö og þrjú ! Ég hefði aldrei ná þessum árangir eða einhverjum árangri ef ég hefði ekki einsett mér að taka það í gegn. Það skiptir svo gríðarlega máli hvað við setjum ofan í líkamann okkar bæði til að ná árangri og til að hafa orkuna í að ná honum! 

Þó svo að stjörnuþjálfuninn sé búin þá hef ég tekið ákvörðun um að halda áfram að blogga um heilsu, hreyfingu og bara hvað sem er ! Vona að einhver nenni að fylgjast með mér :)

Þangað til næst!

kveðja. auður guðmunds.

310580_10150487427049744_743344743_10494161_865925973_n_large 

adfa66614023ff1055b42b819d3dff5d_large 

 


Prinsessa í einn dag !

Það hlaut að koma að því, enda löngu orðið tímabært að við stjörnuþjálfunarpíurnar fengjum að slappa aðeins af eftir að hafa púlað nánast hvern einasta dag seinustu 11 vikurnar! Í gær var okkur boðið í þvílíkan lúxus í bláa lóninu að ég er enþá að átta mig á að þetta hafi í alvörunni gerst en ekki bara verið draumur. Þetta var alveg himneskt og svo bráðnauðsynlegt fyrir þreyttan skrokkinn og við löbbuðum allar endurnærðar og hamingjusamar út. Sannkallaðar stjörnur í takt við kroppanna !

Við lögðum af stað í roadtrip seinnipartinn í gær, allar skvísurnar saman og það var þvílíkt stuð á leiðinni. Við vissum í rauninni ekkert hvað við værum að fara út í, bara að við værum að fara í bláa lónið og eitthvað nudd. Ég get að minnsta kosti sagt fyrir mitt leyti að ég átti engan veginn von á því að vera treat-uð eins og prinsessa næstu 4 tímana, en það var einmitt það sem beið okkar stelpnanna þegar við mættum! Við vorum leiddar upp í betri stofuna í bláa lóninu þar sem við fengum hver og ein einkabúningsklefa með öllu tilheyrandi ! Þarna var ég bara eins og drottning í ríki mínu með sér sturtu, vask, fatahengi og snyrtiborð bara fyrir mig. ÞVÍLÍKUR LÚXUS. Eftir að hafa sturtað okkur skelltum við okkur í baðfötin og fína mjúka sloppa og héldum niður í prívat setustofu fyrir okkur þar sem við sátum við arininn og gæddum okkur á dýrindis shushi, súkkulaði, ávöxtum, ostum og hvítvíni! Já við ákváðum bara að taka þetta alla leið og kúpla okkur aðeins út og það var allt leyfiegt, að sjálfsögðu í littlum skömmtum ! Engin græðgi í gangi. Eftir að hafa gætt okkur aðeins á kræsingunum skelltum við okkur út í lónið og þar beið okkur klukkutíma sæla, nudd og kísilskrúbb og ég held að mér hafi bara aldrei liðið eins vel á ævinni ! Mæli hiklaust með að fara í svona nudd ofan í bláa lóninu, þvílík sæla. Endurnærðar héldum við svo aftur inn í setustofuna þar sem við héldum áfram að gæða okkur á kræsingunum og áttum virkilega góða stund saman. Fengum að prófa allskonar maska og dót og fórum svo hver og ein í húðgreiningu þar sem fundin voru réttu kremin og hreinsvörurnar fyrir okkar húð. Eftir að hafa notið alls þess sem bláa lónið hafði uppá að bjóða fórum við hver og ein í okkar einkaherbergi og sturtuðum okkur og síðan var bara haldið heim. Áður en við fórum vorum við leystar út með hrikalega flottum gjafapoka sem innihélt snyrtivörur frá blue lagoon. Hreinsifroðu, toner, dagkrem, serum, augnkrem og skrúbb! Ég er búin að prófa þetta allt saman og ég get sagt ykkur það að þetta eru hreinlega bestu snyrtivörur sem ég hef prófað ! Ég hef aldrei týmt að kaupa mér einhver svona almennilega krem og hvað þá heila snyrtivöurulínu svo ég er hrikalega þakklát fyrir þessa gjöf. Ég gæti hreinlega ekki verið ánægðari með þennan fullkomna dag! Fullkomin félagskapur, fullkomin aðstaða, fullkomin þjónusta. Mæli hiklaust með því fyrir þá sem vilja treata sig að skella sér á eitt svona herbergi og i nudd. Það er alveg ótrúlegt hvað þettta gerir mikið fyrir mann! TAKK HUNDRAÐ SINNUM BLÁA LÓNIÐ <3 BESTI DAGUR LÍFS MÍNS!

Í dag leið mér eins og öskubusku, prinsessa í gær en daglega lífið tók bara við í dag. Skóli, lærdómur og svo skellti ég mér að sjálfsögðu í ræktina og tók góða föstudagsbrennslu og styrktaræfingar. Það styttist enn í myndatökuna og næsta vika mun fara í að undirbúa sig andlega og útlitslega fyrir hana. Ég er alveg smá kvíðin en hlakka samt líka alveg smá til. Það verður gaman að sjá muninn svona myndrænt og ég held að okkur stelpunum takist nu alveg pottþétt að hafa bara gaman af þessu ! :)

Þangað til næst

kveðja. PrinsessuAuður.

tumblr_llmuhjsvlt1qgc1uao1_500_large 


“Those who choose to succeed always do better than those who never choose at all.”

Næst seinasta vikan er gengin í garð, ég trúi þessu varla! Þetta er búið að vera svo skemmtilegt ferðalag og það verður sárt að kveðja stjörnuþjálfunina þó svo að ferðlagið endi ekki hér. Það styttist í "eftir" baðfatamyndatökuna og ég er ekki frá því að það sé kominn smá kvíðahnútur í magan ! Svona eftir á að hyggja þá er "fyrir" myndatakan miklu minni mál, þá mátti ég vera bolla og öllum var sama um hvort að myndin væri frábær eða ekki því að ég var hvort eð&#39;er  í þessu til að laga mig til, en það er ekki hægt að segja að öllum verði sama um hvernig útkoman á "eftir"myndatökunni verður og þá sérstaklega ekki mér! Nei mér er sko ekki sama, því að ég vil sýna það og sanna að það er allt hægt á 12 vikum og vera fyrirmynd fyrir aðrar konur sem vilja taka sig í gegn. Þessar seinustu tvær vikur verða því teknar með trompi svo að ég geti hreykin staðið á baðfötunum 2 desember og verið virkilega stolt af stjörnuþjálfaða kroppnum mínum, því hann og ég eigum það bæði skilið að vera stolt af okkur!

Ég er núna alveg komin á fullt í að hugsa um hvað ég eigi svo að gera næst. Ég er komin í miklu betra form en ég hafði nokkurn tíman dreymt um og mér líður eins og allir vegir séu færir, fyrir utan það að detta aftur í sukkið, það er sko ekki í boði! Þeim vegi hefur verið lokað og það stendur ekki til að opna fyrir hann aftur. Kannski maður skelli sér bara í að prófa crossfit eða eh slík eftir áramót, það gæti verið gaman að prófa það!

Ég fæ oft spurninguna frá vinum og vandamönnum : "máttu borða þetta?" Mér finnst þetta alltaf jafn asnalega orðuð spruning vegna þess að auðvitað má ég borða allt sem ég vil, en ég bara kýs að gera það ekki! :) Ég er orðin miklu meðvitaðri um hvað ég er að láta ofan í mig og mér er farið að þykja svo vænt um stjörnuþjálfaða kroppinn minn að ég er bara ekki til í að setja hvað sem er ofan í hann! Þetta er allt saman spurning um val og eins og Anna Eiríks segir svo oft : Val er Vald. og það gæti ekki verið meira satt. Mér finnst líka miklu auðveldara að hugsa að ég ætla ekki að fá mér nammi af því að ég kýs að gera það ekki, heldur en af því að það er bannað. Bannað er eitthvað svo leiðinlegt orð og það að eitthvað sé bannað gerir hlutina eitthvað svo meira spennandi, þannig erum við bara mennirnir. Allt sem er bannað er freistandi. Svo bara það að skipt út orðinu bann fyrir val, gerir hlutina strax svo miklu auðveldari. Það að hætta að borða einhverja ákveðna fæðu þarf heldur ekki að vera lífstíðardómur, heldur bara tilraun í einhvern ákveðin tíma, svo getur bara vel verið að þú finnir að fæðan hentar þér ekki og ákveðið sjálfviljug/ur að taka hana út úr mataræðinu en það er þá vegna þess að þú kýst það, en ekki að það sé bannað!

Þetta var speki dagsins í boði Auðar, vona að allir eigi frábæran dag, því ég ætla svo sannarlega að gera það!

 

Kveðja, Auður Guðmundsdóttir

uppáhalds hlaupafélaginn ! 

uppáhalds hlaupafélaginn !

tumblr_luh8jpZKpd1r1u0gno1_500 

 tumblr_ll59j0YCds1qjd90oo1_500_large


Ánægð með árangurinn ! :)

Jæja þá eru 9 vikur búnar og aðeins 3 eftir, þetta er búið að vera alltof fljótt að líða! Ég man hvað mér fannst 12 vikur langur tími í byrjun en vikurnar fljúga hjá og ég þarf að fara að undirbúa mig fyrir endan á þessu og skipuleggja sig hvað ég ælta að gera þegar þessu lýkur! Ég ætla auððvitað að halda áfram á sömu braut því eins og ég hef sagt áður þá er þetta ekki bara eitthvað átak í 12 vikur heldur ætla ég að tileinka mér það sem ég hef lært og gera þetta að líferni að lífstýl. Það er eiginlega ekkert annað í boði því ég finn hvað mér liður miklu betur þegar ég hugsa vel um kroppinn minn. 

Við stelpurnar fórum í mælingu á miðvikudaginn og hún kom bara ágætlega út, ekki alveg eins mikil breyting og fyrstu 4 vikurnar en ég get ekki kvartað því að þetta er frábær árangur á svona skömmum tíma. Þyngdin mín hefur ekki farið mikið niður síðan úr seinustu mælingu og ég hef soldið verið að standa í stað í 66 kg en fituprósentan hefur hinsvegar lækkað mjög. Þegar ég byrjaði var ég með 27% í fituprósentu og eftir fyrstu mælinguna var ég komin niður í 25,5%. Ég er núna hinsvegar komin niður í 22,1% og ég er bara nokkuð ánægð með það. Það er lítið búið að gerast í ummálinu síðan í  síðustu, en það eru 2 cm farnir af mjöðmunum og 1 cm farin af upphandleggjunum, allt annað hefur standið í stað. Ég var á einhverjum smá bömmer yfir því, en ákvað svo að það þýddi ekki neitt. Einhverjar tölur á blaði er kannski ekki það sem skiptir mestu máli þó svo að þeð sé ágætis mælikvarði á hvernig manni gengur. En stundum verður maður samt aðeins að hugsa út fyrir tölurnar og horfa á hvernig líf manns hefur breyst. Ég er komin í svo miklu betra form en ég var í áður, ég er orðin sterkari, mér líður betur með, ég hef meiri orku, hreyfing er orðið með því skemmtilegra sem ég geri og ég finn að ég er mun ánægðari með sjálfa mig og hef meira sjálfstraust. Þetta er árangurinn sem skiptir mestu máli, ekki tölurnar á blaðinu. Svo ég ætla bara að vera mjög stolt af sjálfri mér og ánægð með árangurinn sem ég hef náð!

Eins og ég sagði hér að ofan eru einungis 3 vikur í að við stelpurnar útskrifumst úr stjörnuþjálfununni og höldum út í lífið með breyttum lífstíl. Ég hlakka rosalega til að sjá hvernig mér mun ganga að framfylgja þessu öllu svona ein og óstudd. Spennandi tímar framundan :)

kveðja. Auður Guðmundsdóttir

 

 tumblr_lptvtlFUMN1qk2evwo1_400_large

 


Þetta eru enginn geimvísindi

Að koma sér í form eru engin geimvísindi, samt sem áður virðist þetta flækjast mjög fyrir mörgum. Ég var ein af þeim sem var alltaf að leita af einhverri töfralausn til að grennast og koma mér í form. En svo þegar ég byrjaði í stjörnuþjálfuninni uppgötvaði ég að þetta er í alvörunni bara ekkert flókið og hér er vel við hæfi að nota orðatiltækið : þú uppskerð eins og þú sáir! Ég vissi það nú samt örugglega alltaf innst inni að þetta væri voðalega einfalt, en ég bara einfaldlega nennti því ekki, fannst það of mikil vinna og of tímafrekt. Að koma sér í form og halda sér í formi er mikil vinna og tekur tíma, en í enda dags er það svo algjörlega þess virði og verður alltaf auðveldara og auðveldara. Hreyfing verður partur af deginum og maður getur hreinlega ekki lifað án þess þegar það kemst upp í vana. Svo hér er formúlan af því að grennast og koma sér í form, ekki í neinum töfrabúningi heldur bara einföld og hreinskilin :  

Almennileg hreyfing 4-5 sinnum í viku og hollt mataræði !  

Því meira sem þú hreyfir þig og því meira sem þú tekur á því í hvert skipti, því meiri árangri nærðu! Þetta er i alvörunni svona einfalt og ég er lifandi sönnun þess ásamt hinum fjórum stjörnuþjálfunarvinkonum minum :) En ég vil ítreka það að þetta er einfalt en alls ekkert auðvelt. Þetta er vinna, vinna, vinna og aftur vinna, en svo alls ekki leiðinleg vinna! 

Að borða hollt krefst mikill skipulagningar til að byrja með, því það er alltaf erfitt að breyta út frá vananum. Það kemst svo fljótt upp í vana. Mér fannst þetta gríðalega mikill hausverkur til að byrja með, en núna er þetta bara alls ekkert erfitt.Til þess að vita hvað maður á að borða þarf maður fyrst að fræðast aðeins um næringarefni, hitaeiningar og blóðsykur svo eitthvað sé nefnt. Þessar upplýsingar eru flæðandi um allan veraldarvefinn og ætti ekki að vera flókið að finna. Síðan þarf maður að læra að lesa á umbúðir. Ég er að borða svona 1500-1700 hitaeiningar á dag og passa upp á að borða mikið grænmeti og ávexti. Til þess að ég verði ekki svöng passa ég mig að borða fæðu sem hefur lágan blóðsykursstuðul. Fæða sem hefur lágan blóðsykursstuðul stuðlar að því að við höldum blóðsykrinum tiltölulega stöðugum yfir daginn og hann er ekki að rokka upp og niður. Ef við borðum hins vegar fæðu með háan blóðsykursstuðul, eins og til dæmis mjög kolvetnisríka máltið eins og pasta eða brauð, ríkur blóðsykurinn mjög hratt upp. Það er bara þannig að flest allt sem fer hratt upp, fer líka hratt niður og ef blóðsykurinn fer mikið niður verðum við aftur svöng þó svo að við séum nýbúin að borða. Svo ef við reynum að halda blóðsykrinum stöðugum verðum við minna svöng yfir daginn og borðum ekki meira en við þurfum. 

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að skipulagning og undirbúningur er lykillinn að hollu og góðu mataræði. Það kannast allir við það að verða ógeðslega svangur eða svöng og stökkva inn í næstu búð og áður en maður veit af er maður búinn að gúffa í sig heilli langloku og með því. Til þess að koma í veg fyrir að svona atburðarás fari af stað veður maður að vera undirbúinn fyrir daginn og taka með sér nesti fyrir allan daginn. Það er líka gott að hafa alltaf á sér lítið próteinstykki eða hnetur til að grípa til ef maður verður skyndilega svangur og hefur engan mat. Ég vakna oftast bara aðeins fyrr á morgnanna og útbý mér nesti fyrir daginn. Ég tek með mér hádegismat, 2 millimál og hnetur eða eitthvað slíkt til vara ef ég skyldi verða skyndilega svöng. Svo tek ég alltaf með mér vatnsbrúsa og passa upp á að hann sé alltaf fullur af ísköldu og góðu vatni yfir daginn! 

Vona að þetta hjálpi einhverjum að breyta yfir í hollari lífstíl ! :) 

  

tumblr_lrqrlpmsbS1r1u0gno1_500_large 

svo mikið satt !

tumblr_lpx9n48NWr1qh85fpo1_500_large 

góður morgunmatur til að byrja góðan og hollan dag er lykilatriði !

 

Eigið góða og holla helgi !

 

kveðja, Auður Guðmundsdóttir 


Það hafa allir einhverja ástæðu til að vera í formi !

Góður dagur í dag ! Steig á vigtina og var komin í slétt 67 kíló og er bara hrikalega ánægð með það ! :) Ákvað að verðlauna sjálfa mig og kaupa mér Volcano cape sem er hrikalega flott og ég mér líður fab í henni. Í dag var mjög skemmtileg æfing hjá henni Önnu. Okkur var skipt í hópa fjórar saman og áttum að fær okkur á milli stöðva og gera hverja æfingu sem þar var í 90 sek! Við tókum mjög vel á því stelpurnar og hvöttum hvor aðra áfram! Ótrúlegt hvað hvatning getur gefið manni alveg hrikalegt orkuskot þegar maður er alveg búinn á því ! Eins og ég hef sagt áður, hvatningin skiptir miklu máli :) En stundum verður maður að hvetja sjálfan sig ! Ég rakst á mjög skemmtilega síðu um daginn sem er svona hvatningarsíða og heitir reasons to be fit. Mæli eindregið með að skoða hana þegar maður finnur löngunina í eitt hvað sætt og óhollt, eða kemur sér ekki upp úr sófanum og í ræktina! 

http://reasonstobefit.tumblr.com/

Á síðunni segir eigandinn að hann hafi ákveðið að stofna þessa síðu því hann hafði séð margar svona hvatningarsíður til að hjálpa fólki að verða grannt og líta vel út en aldrei til að hvetja fólk til að vera í formi! Það að vera líkamlega hraustur skiptir miklu meira máli en að líta vel út, bætt útlit á bara að vera bónus ! :)

 Það hafa allir einhverja ástæðu til þess að vera í formi !

kv. Auður Guðmundsdóttir

 

tumblr_lrd4qm5ZXa1r1u0gno1_500_large 


FOREVER YOUNG

Jæja dagarnir og vikurnar líða hrikalega hratt og við erum næstum því hálfnaðar! Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt þegar maður hefur nóg að gera og það er gaman. Ég er búin að skemmta mér alveg ótrúlega vel þessar seinustu vikur við að koma skrokknum á mér í almennilegt form og núna er það virkilega farið að skila árangri. Ég hlakka til í hvert sinn að mæta í ræktina og reyni að fara og hreyfa mig eitthvað á hverjum degi því að ég er alveg lost án þess! Mikil breyting frá því áður þegar ég þurfti gjörsamlega að pína sjálfa mig til þess að drösslast í ræktina að vera alltaf að finna endalausar afsakanir fyrir að fara ekki! 

Dagurinn í dag var góður, ég borðaði vel og hollt og líður afskaplega vel! Ég komst reyndar ekki í það að fara út að hlaupa eins og ég geri venjulega á þriðjudögum vegna þess að það var svo mikið að gera hjá mér! Skólinn er svolítið búinn að sitja á hakanum í öllum þessu ræktarátökum svo ég ákvað að sinna honum aðeins betur í dag, það þarf víst líka! En það verður bara hlaupið á föstudaginn í staðinn :) Það sem gerðu daginn líka svona yndislegan var að við stelpurnar fengum gefins æfingarfatnað og skó frá Reebok ! Fatnaðurinn er úr easytone línunni , og hefur þannig tækni að fötin og skórnir eiga að gera hverja hreyfingu aðeins erfiðar og þar af leiðandi fá meira útúr hverri æfingu. Ég læt ykkur vita hvernig þetta er að virka þegar ég er búin að prófa. Hrikalega flott föt og ég hlakka ekkert smá til að mæta í tíma til Önnu á morgun og prófa ! :)

Í byrjun þessa átaks ákvað ég að ég ætlaði ekki að drekka áfengi á meðan því stendur. Áfengi inniheldur gríðalega margar hitaeiningar og hefur slæm áhrif á heilsuna og maður verður oft orkulaus nokkra daga á eftir. Ég tók þessa ákvörðun vegna þess að ég vildi ná eins miklum árangri og fá eins mikið út úr þessum 12 vikum og hugast getur og ég sé ekki neitt eftir að hafa tekið hana því að ég hef náð gríðarlega góðum árangri á stuttum tíma. EN seinustu helgi átti ég afmæli, 21 árs gömul og líður hræðilega með að vera orðin tuttuguogeitthvað ! En þrátt fyrir það ætla ég mér að fagna í góðra vina hópi núna næstu helgi, og hugsa að ég fái mér nú aðeins í glas að því tilefni. Þetta eru samt búnar að vera miklar vangaveltur hvort ég eigi að gera það eða ekki. Eftir að hafa skoðað hvað áfengi inniheldur margar hitaeiningar fékk ég hreinlega bara smá sjokk! Okei ég vissi að það innhéldi margar hitaeingar en það að sjá þetta svona á blaði svart og hvítt var mjög sjokkerandi.

150 ml af hvítvína ca. 1 glas = ca.150-170 hitaeiningar

skot af vodka = 100 hitaeiningar (og það án safa eða gosdrykkjar)

stórt bjórglas = 250 hitaeiningar

svo það má segja að maður sé á einu kvöldi að innbyrða oft meira af kaloríum en maður borðar á einum degi. En þrátt fyrir þessar sjokkerandi upplýsingar ætla ég mér samt að fanga því almenninlega að ég sé orðin gömul og skemmta mér konunglega næsta laugardag með öllum uppáhalds vinum minum <3 Maður lifir bara einu sinni ? Er ekki eins gott að hafa þá bara gaman af því ? :) Ég ætla því bara að taka extra vel á því í þessari viku svo ég eigi þetta nú skilið !  

Vona að þið eigið frábæra viku og enþá betri helgi ! :)

kveðja. Auður Guðmundsdóttir, 

 tumblr_lpnawqTuR51r1q1zyo1_400_large

 

 


Eilífðarverkefni

Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera mikið á stuttum tíma, ef maður leggur sig allan fram. Núna erum við stelpurnar búnar að vera í 4 vikur á námskeiðinu og 5 vikan hálfnuð. Á þessum fjórum vikum er rosalega margt búið að gerast og ef einhver hefði sagt mér það áður en ég byrjaði, hefði ég ekki trúað því ! Við fórum í mælingu í dag, alveg eins og við gerðum í byrjun. Hún koma bara mjög vel út hjá mér og ég er ekkert smá ánægð með sjálfan mig! Núna hef ég sagt bless að eilífu við næstum því 5 kg og ekki mörg eftir sem ég ætla mér að losna við. Ég hef misst 10 cm að ummáli í mittinu, 3 cm á mjöðmunum og 3 cm á lærunum. Allar buxur eru orðnar of stórar nema þær sem ég passaði ekki í fyrir, þær smellpassa núna! Það er bara ekki annað hægt en að vera í skýjunum með svona árangur. 

En breytingar á ummáli og rúmmáli eru ekki það eina sem búið er að gerast. Að sjálfsögðu fylgir þessi mikið bætt þol, úthald, styrkur og síðast en ekki síst bætt sjálfstraust. Mér var farið að líða hrikalega illa í eigin skinni og það að gera mig til fyrir framan spegilin var kvöl og pína. Það er hrikalega vond tilfinning að vera ósáttur með sjálfan sig og mjög erfitt að koma sér af stað til að gera eitthvað í því. Í dag er ég komin vel á leið á þann stað sem ég vil vera á og líður mjög vel með sjálfa mig og er sátt við mig. Ég veit samt að þetta er bara byrjunin því það verður ekkert stoppað hér. Það að koma sér í form, halda sér í formi og vera sáttur við sjálfan sig er eilífðarverkefni en ekki bara eitthvað átak í nokkrar vikur. Ég hlakka til að halda áfram að vinna með sjálfa mig næstu 7 vikurnar og það verður gaman að sjá hvar ég verð komin þegar þessu lýkur, og ég hlakka mjög til þess að halda áfram að sinna þessu skemmtilega verkefni í framtíðinni. Ég vona svo innilega að ég geti verið hvatning fyrir aðra konur og stelpur sem eru í sömu sporum og ég var í. Stelpur þetta er hægt, þetta er vinna ég neita því ekki, en þetta er sko vinna sem er vel og ríkulega launuð !

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í þetta skiptið :)

Kveðja, Auður Guðmundsdóttir 

3251239023_8ef4a8a0a3_large


Því meira sem maður tekur á, því meir árangur !

4 vikan er hafin og núna verður sko ekkert gefið eftir ! Núna eftir að ég er farin að sjá árangur get ekki beðið eftir að fara í ræktina og gera mitt besta því að ég vil sjá enþá meiri árangur ! Svona er maður gráðugur! En það að sjá árangur er örugglega ein besta hvatningin og í leiðinni verðlaun fyrir vel unni störf, en maður þarf að vera þolinmóður því svona hlutir gerast ekki á einni nóttu.

Ég ef núna í nokkur ár verðið bara sjálf að dúlla mér í ræktinni - já dúlla mér, ég hef verið alltof góð við sjálfa mig hvað hreyfingu varðar og hlíft sjálfri mér við erfiðum æfingum. Ég hef oft og mörgu sinnum sett mig í þann gír að fara að taka mig á og vera duglegri í ræktinni, og alltaf hefur átakið byrjað vel og ég mætt í ræktina oft í viku og passað upp á mataræðið. En svo líða dagarnir og ég sé engan árangur og þá hef ég alltaf gefist upp. Partur af þessu er auðvitað óþolinmæði en svo er það líka það að ég hef ekki verið að reyna eins mikið á mig og ég get. En það er sko ekki í boði í tímunum hjá Önnu að vera eitthvað að dúlla sér, ónei! Því eins og hún segir :því meira sem maður tekur á í tímanum, því meiri árangur! Maður er gjörsamlega game-over eftir hvern einasta tíma, og ég vakna nánast alltaf með harðsperrur daginn eftir. Þetta er bara dásamlegt.

Í dag byrjaði ég á Hollywood matseðlinum en hann er bara 1200 hitaeiningar. Við eigum að vera á honum í 6 daga og verður spennandi að sjá hvað gerist á þessum 6 dögum. Ég er samt alveg rosalega svöng ! En vonandi venst það :)  Ég skellti  mér í ræktina áðab og hljóp 5 kílómetrana og bætti tíman minn um heilar tvær mínútur og er bara nokkuð ánægð með það :) Síðan gerði ég magaæfingar, önnu-rassæfingar og armbeygjur ! Önnu-rassæfingar eins og ég kýs að kalla þær (þvi hún hatar ekki að láta okkur gera þær) eru bara bestu rassæfingar sem ég hef gert og skemmtilegar líka ! Fyrir ykkur sem langar að prófa getið séð þær í meðfylgjandi myndbandi, mæli með þvi að þið geri þær :)

 

 

 

 kv. Auður Guðmunds.


Svíf á bleiku skýi !

Komiði sæl öll sömul ! 

Vika númer 3 að klárast og ég svíf á bleiku skýi ! Núna eru hlutirnir loksins farnir að gerast og rúmt 1.5 kg farið á heilli viku. Ótrúlegt hvað hægt er að gera á stuttum tíma. Ég sé ekkert smá mikla breytingu á líkamanum mínum, ég er öll að verða stæltari og aukakílóin hér og þar eru að hverfa. Buxur sem ég komst ekki í fyrir um 2 vikum renna létt og liðulega upp og ég næ að hneppa án átaka. Þetta er hrikalega góð tilfinning, að sjá loksins árangur eftir að hafa púlað og puðað í þrjár vikur, því það var sko ekki auðvelt að komast hingað þar sem ég er nú ! Ef ég hefði ekki allt þetta góða fólk í kringum mig sem hvetur mig áfram á hverjum degi væri ég örugglega löngu búin að gefast upp. Það er nefnilega rosalega mikilvægt að hafa einhvern sem veitir manni stuðning og hvatningu þegar farið er út í svona lífstílbreytingar, því að það er aldrei auðvelt að breyta einhverju, sama hvað það er. En með vilja, styrk og hvatningu er allt hægt ! :) Ég er því alveg hrikalega jákvæð fyrir næstu vikum. 

En aðeins um vikuna. :) Hún gekk líka bara svona vel eins og vigtunin á gær sagði til um, ég fékk reyndar einhverja flensu og lá heima fyrir á fimmtudaginn og föstudaginn, og missti þar af leiðandi af æfingunni sem var á fimmtudaginn. Mér fannst mjög erfitt að neita sjálfri mér um að fá mér eitthvað extra gott að borða í veikindunum en ég stóðst það samt og hélt mig bara við mitt matarprógram. Sem betur fer var ég ekki lengi veik og er nuna buin að ná mér alveg. :) Núna er það bara að taka næstu viku með trompi og ná enn meir árangri, það verður ekkert gefið eftir ! 

Kv. Auður Guðmunds :) 

tumblr_lr0abitUmA1r1bkieo1_500_large 

 


Næsta síða »

Höfundur

Auður Guðmundsdóttir
Auður Guðmundsdóttir
Ég er 21 árs gömul Reykjavíkurmær og nemandi við Háskóla Íslands. Ég hef gaman af lífinu og vil lifa því holl og heilbrigð! Ég elska að hreyfingu, útiveru, góðan mat, ferðalög, að lesa góða bók, að hlæja, hundinn minn, alla yndislegu vini mína og fjölskyldu!

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband