Megabeib vs. Megavika ?

Tíminn flýgur og vikar númer 2 er að klárast! Hún hefur bara gengið mjög vel og ég er alltaf að ná betri og betri tökum á mataræðinu. Ég finn að ég hef miklu meiri sjálfstjórn og það er ekki eins erfitt að hunsa freistingarnar sem mæta manni á hverjum degi. Ég vinn í bíó með skólanum og það þarf sko mikla sjálfstjórn til að geta unnið þar í kringum öll sætindin og ég tala nú ekki um bíópoppið og ekki fá sér neitt!

Í vinnunni á þriðjudaginn fékk vinkona min sem ég er að vinna með sér dominos pizzu í kvöldmat því að það var jú megavika og undir eðlilegum kringustæðum hefði ég fengið mér með henni. Ég sat þarna inná kaffistofunni með indverska baunaréttinn minn sem er btw. ótrúlega góður en þegar ilmurinn af nýbakaðri dominos pizzu fyllti skilningarvitn fékk ég mikið vatn í munninn og baunarétturinn minn varð allt í einu ekkert svo góður lengur :/. En hugsaði MITT ER VALIÐ : Megabeib EÐA Megavika ?? og Megabeibið varð fyrir valinu. Nokkrum mínútum síðar þegar við vorum búnar að borða hætti ég að hugsa um hvað mig langaði í pizzu. Það er nefninlega málið með freistingar, þetta eru bara nokkrar mínútur sem mann langar hrikalega mikið að fá sér, en svo líður mómentið hjá og þú hugsar ekki um það meira. En ef maður hinsvegar gefur eftir og fær sér, fær maður samviskubit um leið og bitinn er kominn í mallakút og það getur varið alveg í heila viku!

 Í vikunni birtust baðfatamyndirnar af okkur stelpunum og auðvitað var ég fyrst. Mér fannst þetta rosalega óþægilegt fyrst, að standa þarna á nærfötunum fyrir framan alþjóð og ég var ekki nógu ánægð með það sem ég sá. En ég er hingað komin í þetta átak til þess að breyta því ! :) Í enda dags er ég því bara rosalega ánægð með sjálfa mig að hafa tekist á við þetta verkefni og mér líður núna nánast eins og ég geti gert hvað sem er! Við stelpurnar vorum líka svo heppnar að fá þessi fínu og fallegu nærföt frá verslununni Misty ! Þær í Misty eiga rosaelga mikið af fallegum og flottum nærfötum í öllum stærðum og gerðum og allar konur ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. :) 

Æfingar vikunnar voru erfiðar en það er nú samt sem áður hrikalega gaman að ögra líkama sínum svona og sjá framfarir á hverjum degi. Líkaminn minn lét mig nú samt vita að hann væri ekki rosalega sáttur við að vera ögrað svona því ég er enþá að jafna mig eftir meiðsl sem ég hlaut þegar ég lenti í slysinu í janúar. Ég er buin að vera að finna til í bakinu og mjöðminni í vikunni en ég læt það ekki stoppa mig heldur verð ég bara að fara aðeins hægar í æfingarnar og vera meðvituð um meiðslin, teygja vel og fara í heitt bað á kvöldin :)

Þessar tvær vikur hafa verið gríðarlega erfiðar og mikil áskorun en jafnfram hrikalega skemmtilegar og ég sé ekki eftir að hafa ákveðið að taka þátt og er mjög spennt fyrir næstu vikum. Þetta er örugglega það besta sem hefur komið fyrir mig í langan tíma og ég hlakka ekkert smá til að standa fyrir fram alþjóð á nærfötunum aftur i desember þegar þetta er búið og sína hvað ég hef afrekað á þessum 12 vikum !  

Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi og maður uppskerir eins og maður sáir, þetta hefur pabbi minn alltaf sagt mér frá því að ég var lítil og svei mér þá ef kallinn hefur ekki bara rétt fyrir sér :)

 

kveðja. Auður Guðmundsdóttir 

 

 

 


Sweat is fat crying !

Jæja þá er þetta byrjað og fyrsta vikan alveg að klárast, 11 vikur eftir ! Ég var svo heppin, ásamt 4 öðrum glæsilegum konum að að vera valin til taka þátt í þessu átaki Smartlands og Hreyfingar, og sé sko alls ekki eftir því að hafa ákveðið að taka þátt, þó svo að þetta sé ekki auðvelt. Fyrsta vikan er að klárast og ég held að eg hafi alveg hugsað nokkrum sinnum í þessari viku : "hvað er ég eiginlega buin að koma mér út í ?" en ég tala mig alltaf út úr því á endanum og hugsa : "Auður, þú verður megababe eftir 12 vikur og þér á eftir að líða svo vel í líkama og sál!"

En fyrir ykkur sem vitið ekki hvað þetta gengur út á þá voru við Fabulous 5, eins og við kjósum að kalla okkur, valdar til þess að taka mikilli áskorun og ætlum að koma okkur í topp form til framtíðar á 12 vikum. Þetta felur í sér að taka til í mataræðinu og hreyfa okkur 5-6 sinnum í viku. Þetta hljómar rosalega auðvelt þegar maður setur þetta fram svona, en eins og ég held að við allar höfum komist að í þessari viku, og allir sem hafa einhverntíman tekið sjálfan sig í gegn, þá getur þetta verið gríðarlega erfitt, mataræðið þá kannski sérstaklega. Það er að minnsta kosti erfiði parturinn fyrir mig en þetta snýst allt um sjálfstjórn og standast freistingar!

Þessi vika hefur gengið bara afskaplega vel þrátt fyrir að hafa verið erfið.Ég er búin að vera rosalega dugleg að fara eftir þeim leiðbeiningum sem við höfum fengið varðandi mataræðið en það snýst aðalega um að passa upp á hitaeiningarnar og borða fæðu með lágan blóðsykurstuðul. Æfingarnar hafa gengið vel þrátt fyrir strengi og þreytu, og er það að mestu leyti því að þakka hvað þær eru rosalega skemmtilegar og fjölbreyttar. Það skemmir heldur ekki fyrir að vera að æfa með svona rosalega skemmtilegum og lífsglöðum konum, og þjálfarinn okkar hún Anna Eiríksdóttir er alveg hreint frábær! :)

Í gær fórum við stelpurnar í myndatöku, já og enga venjulega myndatöku... heldur var þetta baðfatamyndataka sem var held ég mikil áskorun fyrir okkur allar. En við gerðum þetta bara skemmtilegt og vorum hvor annarri til halds og trausts, We are all in this together! :) Aðal stressið er held ég útkoman, þegar myndirnar verða birtar! úff. En þetta verður bara gaman eftir 12 vikur þegar við förum í aðra eins myndatöku, þegar við lítum allar út eins og sannkallaðar Hollywood stjörnur !

Í morgun fórum við í geðveikan tíma sem heitir Hot Fitness og hann var alveg geggjaður ! Ég held að þetta sé bara uppáhalds tíminn minn af öllum æfingunum sem við erum í og ég hlakka strax til næsta laugardags ! :) Þetta eru svona djúpvöðvaþjálfun í heitum sal og maður svitnar ekkert smá, alveg frábært að fara inn í helgina eftir svona tíma! En þá er það bara að standa sig um helgina og leyfa ekki freistingunum að gleypa sig, sjáum hvernig það gengur ! :) 

Vona að þið eigið góða og holla helgi !

Kveðja. Auður Guðmunds.

 ps. Fannst þetta soldið skemmtileg mynd heh :)

tumblr_lriu3mGfuH1r3nvp2o1_500_large 


« Fyrri síða

Höfundur

Auður Guðmundsdóttir
Auður Guðmundsdóttir
Ég er 21 árs gömul Reykjavíkurmær og nemandi við Háskóla Íslands. Ég hef gaman af lífinu og vil lifa því holl og heilbrigð! Ég elska að hreyfingu, útiveru, góðan mat, ferðalög, að lesa góða bók, að hlæja, hundinn minn, alla yndislegu vini mína og fjölskyldu!

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband